25.06.2009 15:37:20 / ragnheidur
Jæja.
Hver verður með partý?
Kv. Lafi.
»
11.06.2009 16:36:24 / ragnheidur
Núna er ég hneyksluð.
Skrifaði engin afmælisblogg handa Marellu??
Þetta er skandall ársins!
Kv. Ragnheiður
»
10.05.2009 11:50:57 / ragnheidur
Ég sit við borð upp í Grundaskóla, á hægri hönd er rassinn hennar Karitasar og á vinstri er svali. Próf að verða búin bráðum!!
Hver er næst með matarklúbb??? Eða kökuklúbb eða hvað sem þetta hét...
Kv. Ragnheiður prófpundul!
»
19.04.2009 22:46:05 / lusir
Elsku Lýsnar mínar, við í nefndinni vildum bara þakka ykkur fyrir frábæra óvissuferð!!
Þið sem komuð ekki megið vita að þið misstuð af rosalegri skemmtun.
Næstu óvissuferðarnefnd skipa......... *trommusláttur*.........
Hildur og Birna
Með óvissukveðju, Karitas ofurþreytta en hamingjusama eftir æðislega helgi
»
16.04.2009 17:03:58 / ragnheidur
Sælar dömur!
Núna eru bara tveir dagar í ferðina og því komin tími til að undirbúa sig fyrir skemmtun ársins!
Það sem þið þurfið að huga að fyrir ferðina er:
- Taka með TREFIL!! (Var að bæta þessu inn núna!! Látið hinar vita!)
- Að vera klæddar eftir veðri.
- Verið í góðum útiskóm (ekki hvítum fancy skóm sem mega ekkert skítast út)!
- Ef það verður sól er ekki vitlaust að vera með sólgleraugu.
- Sundföt (þurfið ekki handklæði).
- Snyrtidót.
- Vatn á brúsa/flösku.
- Snyrtidót.
- Myndavél.
- Áfengi (ef þið viljið).
- Tjúttföt.
- 6.500 kr.
- GÓÐA SKAPIÐ ÞARF AÐ VERA MEÐ !
(Veit svo sem að það þarf ekki að taka það fram...)
Verið vaknaðar og ferðabúnar upp úr 10, höfum samband við ykkur seinna um hvenær þið verðið nákvæmlega sóttar.
Kveðja,
TLD nefndin.
»
09.04.2009 15:32:40 / lusir
Það verður óvissuferð
laugardaginn 18. apríl
hvenær byrjar hún ? kl. 10 um morguninn
hvenær komum við heim? (upp á skaga) 19.30
en þá er þetta ekki búið
hvað kostar? 6500 kr.
og þær sem vilja fara á ball um kvöldið geta gert það
það er ekki inní verðinu sætubaunir.
þetta verður mega gaman stúlkukindur
endilega skrifið nafnið ykkar hérna fyrir neðan ef þið eruð game
við verðum ca. 10 samkvæmt tölum.
kv. Helena, Ragnheiður og Karítas
»
01.04.2009 20:48:44 / lusir
hææ
Hella pæja hér...
finnst ykkur 10 þ of mikið í skemmtilega óvissuferð? ég veit að við erum ekki ríkar konur, þess vegna ákv. ég að tjakka á stöðunni sætu baunir.. ágætt líka að að taka pening til hliðar núna til að eiga þá...
»
04.03.2009 15:47:01 / ragnheidur
Jæja stúlkur mínar.
Það er engin slugsuháttur í óvissuferðarnefndinni núna! 2008 var ekki ár þessarar óvissuferðarnefndar. 2009 er hins vegar okkar ár og við erum byrjaðar að skipuleggja!
Við viljum byrja að plana snemma þannig að nú spyr ég ykkur:
Hverjar komast 18. apríl?Plís plís plís plís reynið að taka daginn frá því að þetta verður geggjað gaman!

Skrifið í komment hér fyrir neðan kæru stúlkur!
Kveðja,
TLD nefnd (TazzLafaDumma nefnd)
»
22.02.2009 15:31:35 / lusir
»
16.02.2009 22:18:54 / lusir
»
11.02.2009 13:35:41 / lusir
»
09.02.2009 22:32:21 / lusir
Sælar skvísur
Er ekki kominn tími á að endurvekja saumaklúbbinn?
Ég kom með hugmynd í afmælinu hennar Ragnheiðar um að byrja aftur og vera þá með þetta annan fimmtudag í mánuði. Hvernig líst ykkur á það?
Ég ætla allavega að bjóða ykkur í Þórðarsveiginn í KÖKUklúbb á fimmtudaginn næsta kl 20
Endilega látið mig vita hverjar komast.
Kv, Hildur
»
05.02.2009 17:23:34 / lusir
ÉG KEM Á LAUGARDAGINN...
STELPUR ÞAÐ ER SKO PARTY HJÁ RAGNHEIÐI Á LAUGARDAGINN... OG ÉG KEM
VILDI BARA VERA VISS UM AÐ ÞAÐ KÆMI TIL SKILA
OKEY?
kv þóranna
annars ekki bara allir glaðir með lífið... jújú ég hélt það
»
Síður:
1 2 3 ...
24